Færsluflokkur: Bloggar
6.6.2009 | 21:24
Ríkisstyrkur eða ekki?
Aðstoðarmaður fjármálaráðherra telur að ekki hafi verið um ríkisstyrk að ræða.
VBS færði hins vegar milljónatugi til tekna í ársreikningi sínum þegar við móttöku lánsins.
Þar á bæ vita menn að það að fá lán með mun lægri vöxtum en markaðsvöxtum jafngildir því að lánveitandi greiðir árlega í vasa lántaka fjárhæð sem nemur þessum vaxtamun.
Þeir sem reyna að halda því fram að ekki sé um styrk að ræða ættu kannski að fara á fjármálanámskeið hjá þeim sem þáðu styrkinn.
„Ekki ríkisstyrkur“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.5.2009 | 21:21
Nýjum stjórnarmönnum óskað heilla
Ástæða er til þess að óska félögum í Lífeyrissjóði VR til hamingju með nýja stjórnarmenn. Tilnefning VR á Ragnari Önundarsyni sem formanni sjóðsins ber vott skynsemi og þess að framvegis verði fyrst og fremst hugsað um langtíma hagsmuni sjóðsfélaga en fjármunum þeirra ekki hætt í vafasömum viðskiptum.
Nú er bara að bíða og sjá hvort að núverandi stjórnarmenn reyni að fá þessari skipan hnekkt. Þeir ættu hins vegar allir sem einn að sjá sóma sinn í því að segja af sér í kjölfar afkomu sjóðsins á síðasta ári.
Nýir fulltrúar VR valdir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)